Staðan núna er þannig er að ég er kominn með 3 leikmenn og 3 hafa ekki gefið kost á sér, ekkert foreldri hefur boðið sig fram til að fara með.
Ef við náum ekki í lið erum við dæmd úr leik í Íslandsmóti og keppum því ekki meir í vetur fyrir utan nettómótið.
Ég vill hvetja ykkur öll sem ekki hafa svarað að svara sem allra fyrst, hvort sem ykkar drengur kemst eða ekki, því að á morgun þarf að ganga frá ferðatilhögun.
Seinasti Herjólfur siglir kl 19:00 og mæting ekki seinna en hálftíma fyrr, þeir foreldrar sem fara með sjá um að koma drengjunum til hafnar og þyrftu væntanlega að taka bíla (annars er 1 bíll hugsanlega nóg í Eyjum) með. Ef svo ólíklega vill til að drengirnir verði of margir í 2 bíla gæti 3. foreldrið þurft að taka á sig skutl til Þorlákshafnar.
Kostnaður ætti ekki að vera of mikill drengirnir fá einhvern díl í dallinn og gistingin hefur kostað 500kr á kjaft, svo er um 1000 kall í sveitt pizza hlaðborð og einhver vasapeningur í sund og uppihald, reykna með að nammi sé leifilegt á laugardagskvöld.
Svona er staðan, sínið nú leit og svarið um hæl.
--
Kveðja,
Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038
No comments:
Post a Comment