Wednesday, February 2, 2011

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Sæl öll

Staðan núna er þannig er að ég er kominn með 3 leikmenn og 3 hafa ekki gefið kost á sér, ekkert foreldri hefur boðið sig fram til að fara með.

Ef við náum ekki í lið erum við dæmd úr leik í Íslandsmóti og keppum því ekki meir í vetur fyrir utan nettómótið.

Ég vill hvetja ykkur öll sem ekki hafa svarað að svara sem allra fyrst, hvort sem ykkar drengur kemst eða ekki, því að á morgun þarf að ganga frá ferðatilhögun.

Seinasti Herjólfur siglir kl 19:00 og mæting ekki seinna en hálftíma fyrr, þeir foreldrar sem fara með sjá um að koma drengjunum til hafnar og þyrftu væntanlega að taka bíla (annars er 1 bíll hugsanlega nóg í Eyjum) með. Ef svo ólíklega vill til að drengirnir verði of margir í 2 bíla gæti 3. foreldrið þurft að taka á sig skutl til Þorlákshafnar.

Kostnaður ætti ekki að vera of mikill drengirnir fá einhvern díl í dallinn og gistingin hefur kostað 500kr á kjaft, svo er um 1000 kall í sveitt pizza hlaðborð og einhver vasapeningur í sund og uppihald, reykna með að nammi sé leifilegt á laugardagskvöld.

Svona er staðan, sínið nú leit og svarið um hæl.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Jæja þá er ég kominn með 2 leikmenn á mótið þá Árna Pál og Orra Stein, og enga foreldra.

Ég þarf að fá svör frá öllum í dag, líka ef drengirnir komast ekki.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Sæl öll

Þá er það ljóst að 3. umferð Íslandsmóts fer fram í Eyjum um helgina, og fyrirvarinn góður eins og alltaf.
Það þarf að fara með Herjólfi á föstudagskvöldi um 6 leitið og heim á sunnudeginum þannig að þetta eru 2 nætur.

Ég þarf að fá frá ykkur sem allra fyrst hvort ykkar drengur kemst með, einnig þarf ég að fá 2 foreldra með til að sjá um fararstjórn.

Endilega bregðist fljótt við þessum pósti svo hægt sé að bóka far sem fyrst.

Leikjadagskrá er kominn inn á bloggið http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/
endilega verið dugleg að fylgjast með því.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038