Monday, May 2, 2011

Dósa og flöskusöfnun 4. maí Hlíðaskóla

Dósa og flöskusöfnun 4. maí

Hlíðaskóla

Miðvikudaginn 4. maí ætla allir yngri flokkar Vals í handbolta, fótbolta og körfubolta að fara í flösku og dósasöfnun, mæting er í Hlíðaskóla kl 17 og þá fá allir úthlutaðar götur til að fara í, þeir sem mæta verða að hafa einn fullorðinn með sér til aðstoðar. Hagnaðurinn skiptist jafnt á milli þeirra sem mæta og áætlum við að öllu verði lokið kl. 21.

Sjámust hress í Valsgallanum og muna að hafa svarta plastpoka meðferðis.

Elfur Sif og Gísli sími 660-8860

Foreldrar Ýmis Arnar ( 1997) Tjörva Týs ( 2000) æfa handbolta og fótbolta


Wednesday, April 6, 2011

Æfing fellur niður

Æfing fellur niður næsta föstudag 8. apríl vegna handboltamóts.

kv Frosti

Wednesday, March 16, 2011

æfing fellur niður

Æfing fellur niður næstkomandi föstudag 18. mars vegna þess að húsið er í notkun.

kv Frosti

Tuesday, March 8, 2011

Fjölliðamót helgina 19.-20. mars

Sæl öll hér er komin dagskrá fyrir síðasta Íslandsmót vetrarins sem er haldið í Síðuskóla á Akureyri helgins 19.-20. mars og eru drengirnir áfram í c- riðli.



19-03-2011 16:30 Valur MB dr. - Þór Akureyri MB dr. Síðuskóli


19-03-2011 18:30 Hrunamenn MB dr. - Valur MB dr. Síðuskóli


20-03-2011 10:00 Reykdælir/Skallagr. MB dr. - Valur MB dr. Síðuskóli


20-03-2011 12:00 Valur MB dr. - Afturelding Mb dr. Síðuskóli


Endilega látið vita í maili sem fyrst hverjir komast.



Kv. Frosti

Sunday, March 6, 2011

æfing fellur niður

Æfingin á mánud. 7. mars fellur niður þar sem allir eru að jafna sig eftir Nettómót og ég er í prófi.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038

Wednesday, February 2, 2011

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Sæl öll

Staðan núna er þannig er að ég er kominn með 3 leikmenn og 3 hafa ekki gefið kost á sér, ekkert foreldri hefur boðið sig fram til að fara með.

Ef við náum ekki í lið erum við dæmd úr leik í Íslandsmóti og keppum því ekki meir í vetur fyrir utan nettómótið.

Ég vill hvetja ykkur öll sem ekki hafa svarað að svara sem allra fyrst, hvort sem ykkar drengur kemst eða ekki, því að á morgun þarf að ganga frá ferðatilhögun.

Seinasti Herjólfur siglir kl 19:00 og mæting ekki seinna en hálftíma fyrr, þeir foreldrar sem fara með sjá um að koma drengjunum til hafnar og þyrftu væntanlega að taka bíla (annars er 1 bíll hugsanlega nóg í Eyjum) með. Ef svo ólíklega vill til að drengirnir verði of margir í 2 bíla gæti 3. foreldrið þurft að taka á sig skutl til Þorlákshafnar.

Kostnaður ætti ekki að vera of mikill drengirnir fá einhvern díl í dallinn og gistingin hefur kostað 500kr á kjaft, svo er um 1000 kall í sveitt pizza hlaðborð og einhver vasapeningur í sund og uppihald, reykna með að nammi sé leifilegt á laugardagskvöld.

Svona er staðan, sínið nú leit og svarið um hæl.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Jæja þá er ég kominn með 2 leikmenn á mótið þá Árna Pál og Orra Stein, og enga foreldra.

Ég þarf að fá svör frá öllum í dag, líka ef drengirnir komast ekki.

--
Kveðja,

Frosti Sigurðarson
Sími: 861-7038