Tuesday, December 15, 2009

Pizzuveisla minniboltans

Pizzuveisla minniboltans
Á morgun miðvikudaginn 16. desember ætlum við í minniboltanum að hittast í Lollastúku
kl. 16:00 og fá okkur pizzu og horfa á video saman.
Pizza og gos verður í boði körfuknattleiksdeildarinnar þannig að eina sem þú þarft að gera er að mæta. Mætum allir og eigum góða stund áður en við förum í jólafríið.

Thursday, December 10, 2009

Æfingar fram að jólum

Sælir drengir, foreldrar og forráðamenn.

Nú eru aðeins 3 æfingar eftir fram að jólum og hvet ég alla til þess að mæta á æfingar.

Eins og þið hafið kannski heyrt frá foreldrum ykkar þá er Hörður hættur að þjálfa en hann er í annari vinnu og hafði ekki tíma til þess að þjálfa með þeirri vinnu. Við erum að leita að nýjum þjálfara fyrir ykkur og verður hann byrjaður að þjálfa ykkur eftir áramót.

Í næstu viku ætlum við svo að gera eitthvað skemmtilegt saman áður en við förum í jólafrí og mun ég láta ykkur vita hér á blogginu hvað það verður.

Með Valskveðju.

Lýður