Monday, January 31, 2011

Fjölliðamót helgina 5.-6. febrúar

Jæja þá get ég ekki betur séð en að við séum að fara til Vestmannaeyja um helgina, leikjaplanið er eftirfarandi:

05-02-2011 14:00...........Valur MB dr.- ÍBV MB dr. Vestmannaeyjar
06-02-2011 12:30...........Haukar MB dr. - Valur MB dr. Vestmannaeyjar

Kv. Frosti

Friday, January 28, 2011

Póstmót Breiðabliks

Leikjaplan:

Leikstaður: Kórinn
Sunnudagur 30 janúar
Umsjón: Frosti

Spilað á velli 3
09:30 Valur-KFÍ A
10:30 Valur-Fjölnir C
11:30 Valur-Breiðablik B

Bestu Kveðjur,

Wednesday, January 26, 2011

Æfingagjöld 2011

Nú er búið að taka ákvörðun um æfingagjöld fyrir árið 2011. Að þessu sinni reyndist nauðsynlegt að hækka þau í samræmi við aukinn rekstarkostnað sem og niðurskurð styrkja frá Reykjavíkurborg. Hækkanir eru aldrei vinsælar en valið stóð á milli þess að hækka æfingagjöldin eða minnka þjónustuna (loka um helgar, fækka æfingum o.s.frv.) Allir krakkar frá 3.-7. Flokk í fótbolta eru skráðir með árgjald inn í rafræna Reykjavík og er það gert í stað þess að hafa greiðslutímabilin þrjú eins og verið hefur. Hægt er að ráðstafa og skipta eftirstöðvunum niður á allt að átta mánuði ef haft er samband við skrifstofu fyrir 1. mars annars er sendur út greiðsluseðill með allri upphæðinni. Hægt er að sjá gjaldskrá æfingagjalda fyrir árið 2011 á heimasíðunni valur.is.

Ákveðið hefur verið að gera "leikmannasamninga" við alla yngri flokka iðkendur hjá félaginu í öllum greinum. Að sjálfsögðu er slíkur samningur ekki bindandi fyrir einstakling undir 16 ára og er fyrst og fremst gerður til að auka upplýsingaflæði og ánægju. Samningurinn er þannig upp byggður að foreldrar fylla út allar upplýsingar um sig og leikmanninn.

Samningurinn inniheldur nokkur atriði varðandi skyldur leikmanns, foreldra og félagsins sem eru almenns eðlis varðandi samstarf leikmanns, félags og foreldra.

Samningurinn gildir til loka árs og endurnýjast með staðfestingu foreldris/forráðamanns við upphaf hvers tímabils. Samningseyðublöðin fást hjá þjálfurum allra flokka og eiga að skilast til þjálfara þess flokks sem leikmaðurinn tilheyrir. Einnig er hægt að opna og prenta samninginn af heimasíðu okkar og skila til þjálfara.

Póstmót Breiðabliks

Sæl öll

Það voru að berast drög að leikjaniðurröðun og svo virðist sem okkar drengir spili sína leiki fyrir hádegi á sunnudeginum í Kórnum í Kópavogi.

Nánari upplýsingar koma um leið og endanleg niðurröðun berst.

Kv Frosti

Wednesday, January 5, 2011

Æfingar

Sæl öll og gleðilegt ár

Fyrsta æfing á nýju ári verður fimmtudaginn 6. janúar. Ég verð ekki kominn suður en er búinn að fá góða drengi til að leysa mig af á fimmtudeginum og föstudeginum. Ég verð síðan mættur ferskur mánudaginnn 10. janúar.

Vegna einhverra vandræða sem ég kann ekki að greina frá hefur Valur afskráð alla flokka á Actavismótinu sem er um næstu helgi þannig að það verður ekkert af því.

Kv. Frosti