Wednesday, December 15, 2010

Jólafrí og Actavismót Hauka.

Síðustu æfingar fyrir jól klárast í þessari viku (sunnudag fyrir þá sem eru á æfingum þá).

Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn 4. desember.

Við erum svo búin að skrá alla minniboltaflokka á Actavismót Hauka sem fer fram 8-9. janúar. Mótið er með svipuðu sniði og Nettómótið. Þátttökugjald 1.800 krónur.  Nánar um það síðar

Wednesday, December 1, 2010

Dagskrá á jólamóti nettó (uppfært)

Sæl

Leikið á sunnudegi en ekki á laugardegi!
Smá breyting á leikjum einnig þar sem að Fjölnir dró sig úr keppni.

Verum mætt amk. 20 mínútum fyrir fyrsta leik. Þátttökugjald er 2500 krónur á mann. Greiðist til þjálfara fyrir fyrsta leik. (ÍR ákvað að fella niður 5000 króna þátttökugjald á hvert lið). 

11 ára strákar           sunnudagur              
ÍR 1
ÍR 2
Valur
Breiðablik

Völlur 1:
12.20  ÍR – Valur
12.45  ÍR  – Breiðablik
13.10  Valur – ÍR 2
13.35  Breiðablik – ÍR 2
14.00  ÍR  –  ÍR 2
14.25 Valur – Breiðablik


Tuesday, November 30, 2010

Æfingarleikur

Á fimmtudaginn næstkomandi ca 2. des. verður stórveldaslagur þegar drengirnir mæta KR í æfingaleik í DHL höllinni (í Frostaskjóli við hliðina á fótboltavellinum) kl. 16:20 til 17:20 þannig að æfingin í Vodafonehöllinni fellur niður.

KR heimsóttu okkur í haust og nú er komið að okkur að launa greiðann, endilega látið mig vita í maili eða sms ef drengirnir komast ekki (engar lélegar afsakanir teknar til greina).

Kv. Frosti

Nettómót ÍR helgina 4-5 desember.

JÓLAMÓT NETTÓ OG ÍR

Helgina 4.-5. desember n.k. mun körfuknattleiksdeild ÍR standa fyrir stórmóti

í samvinnu við Nettó. Mótið er fyrir yngstu iðkendurna, drengi og stúlkur, sem

fædd eru 1999-2004. Keppt verður í Íþróttahúsinu við Seljaskóla.

Leikið verður 2 x 10 mínútur og verður leiktíminn ekki stöðvaður. Mótið

mun fara fram á tveimur völlum í senn (spilað 5 á 5). Stigin verða ekki talin

enda allir komnir í jóla-keppnisskap. Hver hópur mun spila 3-4 leiki annan hvorn daginn og á það að klárast á 3-4 tímum.

Við í Val ætlum auðvitað ekki að láta okkar eftir liggja og förum með lið í nokkrum aldurshópum. Aldurshóparnir eru:

6-7 ára kk/kvk (Bloggsíða: http://valurkarfamb6-7.blogspot.com/)

8-9 ára kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb8-9.blogspot.com/ )

10-11 kvk (Bloggsíða: http://valurkarfambkv.blogspot.com/ )

10-11 kk (Bloggsíða: http://valurkarfamb10-11.blogspot.com/ )

Við munum tilkynna leikdag og leiktíma á bloggsíðunum vonandi í seinasta lagi á fimmtudag.

Valur borgar engin mótsgjöld yngri flokka utan Íslandsmóta og því mun gjaldið deilast niður á þátttakendur. Þátttökugjald á hvern iðkanda er því krónur 3.000 sem ætti að vera rúmlega nóg fyrir gjaldinu. Afgangurinn mun ganga upp í mótsgjald næsta móts fyrir þá sem taka þátt í þessu móti. Gjaldið skal greiða til þjálfara á leikdegi fyrir fyrsta leik.

Minni alla á að verða sér út um búninga í Hummel búðinni milli kl. 16:00-18:00 í þessari viku.

Allar nánari upplýsingar verða settar inn á bloggið reglulega fyrir helgina.

Ef einhverjar spurningar eru sendið þá póst á Lydur06@ru.is

Monday, November 22, 2010

Árshátíð MB 10-11 ára

Þar sem allar æfingar falla niður á föstudag 26. nóv. verður flokknum boðið í svaka partý í Lollastúku frá 16:30-18:00. Boðið verður uppá pizza veislu, bíósýningu og gleði. Reikna með að herlegheitin kosti 500 kall á kjaft sem er nú ekki mikið á þessum síðustu og verstu.

Kv. Frosti

Saturday, November 20, 2010

Morgundagurinn

Jæja það er staðfest að leikurinn er kl 9:00 á morgun þannig að við förum kl 7:00 frá Valsheimilinu, röðum í bíla þar.

Kv Frosti

Wednesday, November 10, 2010

Fjölliðamót helgina 20. - 21. nóvember

Sæl öll
Nú er komin dagskrá næsta Íslandsmóts sem fram fer á Flúðum helgina 20.-21. nóv. Ég stefni á að hafa sama fyrirkomulag og á síðasta móti að nota 10 leikmenn í hverjum leik þannig að ef þátttaka er góð þá skiptast strákarnir á yngra ári á að hvíla.

Dagskráin er þannig:

20. nóv.
-kl 13:00 KR
-kl 16:00 Hrunamenn

21. nóv.
-kl 10:00 ÍBV
-kl 13:00 Sindri


Kv: Frosti

Friday, October 22, 2010

Fjölliðamót helgina 23.-24. okt.

Jæja þá er alvaran að fara að hefjast, allir eiga að vera mættir 12:30 í Seljaskóla á morgun.

Áfram Valur

Sunday, October 17, 2010

Fjölliðamót helgina 23.-24. okt.

Þá koma upplýsingar um mótið um næstu helgi sem fer fram í Seljaskóla í Breiðholti.

Laugardagur 23. okt.

Kl. 13:00 ÍR - Valur
Kl. 15.00 ÍBV - Valur

Sunnudagur 24. okt.

Kl. 09:00 Þór Ak. - Valur
Kl. 11:00 Hrunamenn - Valur

Ef einhverjar breytingar verða kemur það á bloggið svo muna að fylgjast með.


Kv. Frosti

Tuesday, October 12, 2010

Æfingaleikur

Jæja þá er kominn æfingaleikur á dagskrá, hann verður á hefðbundnum æfingatíma á föstudaginn 15. okt. í Vodafone höllinni í sal 3 við KR.

Kv Frosti

Tuesday, October 5, 2010

Mætingar á æfingar

Jæja þá er komin tími til að girða sig í brók á fara að mæta á æfingar drengir mínir. Það gengur ekki upp að vera 4-6 á æfingum það er bara vont fyrir alla. Nú er stutt í fyrsta mót aðeins 3 vikur sem þýðir að við höfum 8 æfingar til að æfa okkur og það er margt sem á eftir að bæta ef við ætlum að ná einhverjum árangri. Ég er að vinna í að fá æfingaleik fyrir okkur en það kemur í ljós fljótlega.

En strákar þið þurfið að tala meira saman í skólanum og hvetja hvorn annan til að mæta og láta mig vita ef þið mætið ekki.

Förum nú að sýna metnað og æfa af krafti.

Kv. Frosti

Friday, September 24, 2010

Foreldrafundur

Vegna komu aldraðrar móður minnar í borgina verður foreldrafundinum frestað til föstudagisins 1. október kl 17:00, þar sem hún er búinn að kaupa leikhúsmiða fyrir kallinn á fimmtudagskvöld.

Fundurinn verður í sal 3 á 2. hæð í Vodafonehöllinni.

Kv. Frosti

Monday, September 20, 2010

Mætingar

Sælir Foreldrar

Ég vildi nú bara koma með eina færslu hér til að minna á bloggið og láta vita að ég sé mættur til starfa. Ég sé að Lýður er búinn að setja inn einhverjar tilkynningar en ég vill bara ítreka að hér kemur allt fram sem ég þarf að koma til ykkar því að ég er latur að eðlisfari og nenni ekki að skrifa tölvupósta í massavís.

Einnig langar mig til að nefna að mæting og stundvísi drengjanna hefur verið mjög léleg sem gerir starf mitt erfiðara og það er eitthvað sem okkur letingjunum leiðist. Því vil ég biðja um að fá línu frá fólki ef drengirnir komast ekki á æfingu með eins miklum fyrirvara og unt er eða jafnvel sms sem er enn betra (síminn minn er 861-7038) og einnig að þið hvetjið drengina til að mæta á réttum tíma.

Annars hlakka ég bara til vetrarins, góðar stundir

Frosti

Tuesday, September 14, 2010

Æfing fellur niður

Æfing fellur niður föstudaginn 18. september vegna mótahalds í Vodafone höllinni

Monday, September 6, 2010

Breyttur æfingatími

Við munum breyta æfingatímanum örlítið en bara til góðs.

Á föstud0gum sjáum við fram á að geta byrjað kl. 15:30 í stað 15:50 og mun æfing standa til 16:40 eins og áður var auglýst.

Við munum jafnvel reyna þetta á mánudögum einnig en við ætlum að bíða aðeins með þetta þangað til við erum vissir um að það gangi upp. Við munum láta ykkur vita um leið og sú breyting tekur gildi.

Thursday, August 19, 2010

ÆFINGAR HEFJAST AFTUR

Jæja, þá er loksins komið að því. Frá og með mánudeginum 19. ágúst þá munu æfingar hefjast aftur.
Eins og í fyrra þá mun Frosti sjá um æfingarnar hjá ykkur. Æfingatímana getið þið séð hérna efst hægra megin á síðunni.
Það er líka gaman að segja frá því að allir iðkendur minniboltaflokkanna fá gefins bolta frá körfuknattleiksdeild Vals um leið og iðkendur hafa skráð sig og borgað æfingagjöld fyrir veturinn.

Thursday, August 5, 2010

Æfingabúðir

Körfuboltaskóli Vals

Námskeiðið er fyrir börn, 6 ára og eldri og fer fram í glæsilegri aðstöðu í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Lögð verður áhersla á þjálfun í smærri hópum auk þess sem eldri þátttakendur fá einstaklingsþjálfun. Reyndir og góðir leiðbeinendur sjá um skólann og gestakennarar koma í heimsókn. Skráning fer fram á heimasíðu Vals: http://valur.is/Sumarstarf/Korfuboltaskoli/

Boðið verður upp á tvö viku námskeið fyrir 6-11 ára frá 09:00-12:00
Námskeið I: 9.–13. ágúst
Námskeið II: 16.-20. ágúst

Hálfsmánaðar námskeið fyrir12-15 ára frá 12:30-14:00 frá 9.-20. ágúst.

Hálfsmánaðar námskeið fyrir 16-18 ára frá 16:00-17:30 frá 9.-20. ágúst

Verð á vikunámskeiði hjá yngri er 5.000 kr. en taki þau bæði námskeiðin er verðið 8.000 kr.

Verð á námskeiðinu hjá eldri iðkendum er 6.000 krónur tvær vikur.

10% systkynaafsláttur

Skólastjóri verður Lýður Vignisson yfirþjálfari körfuboltans.

Tuesday, May 11, 2010

Uppskeruhátíð Yngri Flokka

Körfubolti í Val
Uppskeruhátíð yngri flokka

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í körfubolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar þriðjudaginn 18. maí kl.16:30. Þar verður uppskera vetrarins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2009-2010.
Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður Valur upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.
Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.

Með Valskveðju
Uppskeruhátíðarnefnd

Friday, April 30, 2010

Æfingaleikur

Þá er það komið á hreint að æfingaleikurinn verður á morgun 1. maí. Mæting er kl 14:30 í kórnum í Kópavogi Ég á enn eftir að heyra frá Magnúsi Konráð og Kristjáni Geir þannig að gott væri að heyra frá þeim, er líka búin að reyna síma, þannig að ef einhverjir hitta þá félaga þá látið þá endilega vita.

Æfing fellur niður á sunnudagsmorgun í staðinn.


Ég er í síma 861-7038

Kv Frosti

Thursday, April 29, 2010

Æfingaleikur

Sæl öll

Ég veit að þetta er stuttur fyrirvari en það var núna rétt í þessu verið að bjóða drengjunum að spila æfingaleik við Breiðablik á laugardag 1. maí, milli 15 og 16 í tilefni af opnun á nýju íþróttahúsi í Kórnum í Kópavogi. Ég mundi þá fella niður æfingu á sunnudag í staðinn. Ég mundi vilja heyra frá ykkur sem allra fyrst því að ég þarf að svara á morgun. Drengirnir eru búnir að spurja mikið um leiki og þetta er sennilega síðasti séns að fá leik, þannig að endilega bregðist vel við þessu þótt fyrirvari sé stuttur.

Tuesday, April 27, 2010

Bíóferð

Jæja það er allt samkvæmt áætlun, myndin hefst kl 18 í Kringlunni. Ég verð mættur hálftíma fyrr við miðasöluna og verð með peninga meðferðis sem hafa orðið afgangs á mótunum í vetur og læt drengina hafa þá. Þetta eru á bilinu 600-1800 kr og allir nema Kristján Geir, Árni Páll og Einar Alex eiga eitthvað inni.

Endilega mæta tímanlega.

Kv Frosti

Friday, April 23, 2010

Úrslit unglingaflokks karla

Um helgina fara fram úrslit unglingaflokks karla í Smáranum Kópavogi.

Á laugardaginn spila okkar menn í Val gegn Haukum kl. 16:45 og hvetjum við alla iðkendur til þess að mæta og styðja sitt lið til sigurs.

Ef Valur sigrar í þessum leik þá spila þeir til úrslita á sunnudaginn kl. 18:00

Thursday, April 22, 2010

Bíóferð

Jæja það var ákveðið á æfingu á miðvikudag að fara í bíó næsta þriðjudag kl 18:00 á Astroboy. Sýningin er í Kringlunni og kostar 600 kr eftir því sem ég kemst næst, einnig er gott að hafa smá aukapening fyrir poppi og kók eða einhverju gotteríi innan skikkanlegra marka.

Kv Frosti

Tuesday, April 20, 2010

Bíóferð

Jæja þá var ég að spá í að safna drengjunum saman og fara í bíó í næstu viku. Stefnan er að gefa frí á æfingu á þriðjudag og fara í sexbíó í kringlunnu. Ég á eftir að koma með betri upplýsingar hér á blogginu á næstu daga þannig fylgist vel með.

Kv. Frosti

Thursday, April 15, 2010

Halló halló

Á sunnudag kl. 16 fer fram fyrsti leikur Vals og Fram í úrslitarimmunni í úrslitakeppni kvenna í handknattleik. Ég hvet alla mína menn til að fjölmanna á Hlíðarenda og stiðja stelpurnar því mikið er í húfi, svo er líka alltaf gaman að fara með félögunum á leik. Entilega rottið ykkur saman og látið í ykkur heyra í höllinni. Hver veit nema stelpurnar eigi síðan eftir að stiðja okkur þegar á þarf að halda :)

Kv. Frosti

Monday, April 12, 2010

Wednesday, March 24, 2010

Páskafrí

Sæl öll

Æfingin á sunnudag næstkomandi, ca. 28. mars er síðasta æfing fyrir páska.
Fyrsta æfing eftir páska er síðan þriðjudag 6. apríl.

Páskakveðjur

Frosti

Monday, March 22, 2010

Æfingabúðir Vals um páskana

Æfingabúðir Vals um páskana

Dagana 29.-31. mars fara fram æfingabúðir Vals í körfuknattleik í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Umsjónamaður verður Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals en honum til aðstoðar verða reyndir leiðbeinendur.

Boðið verður upp á tvo aldursflokka, yngri og eldri. Yngri iðkendur fæddir 1998-2003 (6-11 ára) eru frá kl. 09:00-11:30. Ráðlegt er að senda börnin með smávegis næringu með á æfingarnar en hlé verður gert á æfingum milli 10:00-10:20 til þess að nærast.

Eldri iðkendur fæddir 1993-1997 (12-16 ára) eru frá kl. 12:00-14:00

Æfingabúðirnar munu einkennast af grunn- og tækniþjálfun þar sem lögð verður áhersla á einstaklinginn. Æfingabúðir yngri iðkenda munu þó einnig einkennast af leikjum og skemmtun en á síðasta degi æfingabúðanna verður haldið mót milli iðkenda í hvorum aldurshópi fyrir sig.
Þátttökugjald er kr. 3.000 krónur sem greiðist á fyrsta degi æfingabúðanna.

50% Vinaafsláttur: Ef þú ert Valsari og langar að bjóða einhverjum utan félagsins með þér í æfingabúðirnar þá er það alveg sjálfsagt. Ef þú færð einhvern vin með þér í æfingabúðirnar þá borgið þið báðir/báðar einungis hálft gjald.

Skráningar berist til Lýðs á netfangið Lydur06@ru.is eða í síma 694-4033. Vinsamlegast gefið upp nafn og kennitölu iðkenda sem og nafn, kennitölu og gsm-símanúmer foreldra.

Saturday, March 20, 2010

Mæting á mót

Svona ef einhverjir eru spá í mætingartíma í Seljaskóla þá er æskilegt að drengirnir séu mættir og komnir í búning hálftíma fyrir leik.

Kv Frosti

Þátttaka á móti um helgina

Þeir sem hafa tilkinnt sig á mótið um helgina eru:
Elías
Ísak
Orri
Helgi Tómas
Arnar Steinn
Kristófer
Bergur Ari
Kristján Geir
Maggi
Hjalti
Arngrímur
Árni Páll
Gabríel

Kv Frosti

Thursday, March 18, 2010

Engin æfing á sunnudag

Ég gleymdi að taka fram í gær að æfingin á sunnudagsmorgun fellur niður vegna mótsins um helgina.

Mig vanntar síðan að fá póst frá foreldrum um þátttöku en það er bara einn búinn að svara mér.

Kv Frosti

Wednesday, March 17, 2010

Fjölliðamót um helgina

Jæja ég sé ekki betur en að við spilum bara á sunnudag og eigum eftirfarandi leiki í Seljaskóla.

kl. 13:00 við Þór Ak.
kl. 14:00 við Hamar
kl. 17:00 við ÍR

Endilega látið mig vita ef drengirnir geta ekki mætt. Ég reykna með öllum á eldra ári, en kem til með skipta yngra árinu á milli leikja ef margir geta mætt.

Kv. Frosti

Monday, March 15, 2010

Fjölliðamót um helgina

Núna næstu helgi 20. - 21. mars er fjölliðamót hjá drengjunum og fer það fram í Seljaskóla. Nánari upplýsingar koma á bloggið í vikunni.

Kv Frosti

Wednesday, March 3, 2010

Nettómót leikjaniðurröðun

Jæja þá er niðurröðun leikja komin. Valur 1 er 98 árgangur og Valur 2 er 99 árgangur.

Laugard. Valur 1
9:00 Valur 1 - Þór Ak. Ásbrú (völlur 12)
11:00 Valur 1- Keflavík, Akurskóli (völlur 13)
16:30 Valur 1 - Stjarnan, Akurskóli (völlur 13)
18:30 Valur 1 - Reykdælir, Ásbrú (völlur 12)

Sunnud. Valur 1
9:30 Valur 1 - Stjarnan 2, Ásbrú (völlur 11)

Laugard. Valur 2
16:00 Valur 2 - KR, Ásbrú (völlur12)
17:30 Valur 2 - Fjölnir, Sunnubraut (völlur 1)
19:00 Valur 2 - Breiðablik, Sunnubraut (völlur 3)

Sunnud. Valur 2
8:30 Valur 2 - KR, Sunnubraut (völlur 4)
11:00 Valur 2 - Þór Ak. Sunnubraut (völlur 1)

Svona lítur þetta ú um helgina. Eins og sjá má eiga eldri strákarnir 4 leiki á laugarseginum þannig að það verður mikið álag á þeim, en svona er bara skipulagið og mínir menn eru ekki í vandræðum með að bregðast við því. Annars hlakka ég bara til að sjá ykkur um helgina

Kv. Frosti

Monday, March 1, 2010

Nettómót um helgina

Jæja þá er að koma að nettómótinu sem er um næstu helgi. Ingvaldur pabbi hans Ísaks er að sjá um að kanna þátttöku og er búinn að senda tölvupóst á alla foreldra en ennþá eiga einhverjir eftir að svara þannig ég vill hvetja alla til að svara sem fyrst þannig að við vitum hverjir ætla að fara. Annars verða öll samskipti um mótið í tölvupósti.

Kv. Frosti

Friday, February 26, 2010

Fjáröflun

Nú ætlum við í körfunni í Val að fara af stað með fjáröflun fyrir yngri flokkana.
Um er að ræða sölu á klósettpappír og eldhúsrúllum.

Eftirfarandi pakkar eru í boði:

Pakki 1: Wc pappír 200 blaða 48 rúllur c.a 24m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 – 3000
Pakki 2: WC MAXI 380 blaða 40 rúllur c.a 46m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 3: Lúxus WC 3ja laga 36 rl c.a 26,5m Verð: 2.800 Verðtillaga út: 3700 - 4000
Pakki 4: Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla c.a 12m Verð: 1.800 Verðtillaga út: 2700 - 3000

Hverjum og einum er frjálst að kaupa eins mikið og hann/hún vill og þið getið verðlagt vöruna eins og ykkur sýnist best. Hver og einn hirðir svo allan ágóða af sinni sölu sem gæti þá nýst til að fjármagna næsta keppnisferðalag.

Allar pantanir þurfa að berast í seinasta lagi fyrir kl. 20:00 á sunnudagskvöld (28. febrúar) á mailið lydur06@ru.is
Takið fram nafn iðkanda, hvaða pakka þið viljið kaupa og magn. Eins og áður kom fram þá er ykkur frjálst að kaupa alla pakkana og í eins miklu magni og ykkur sýnist.
Upplýsingar um greiðsufyrirkomulag og afhendingu á vöru munu svo berast til ykkar á mánudaginn nk (1. mars).

Friday, January 29, 2010

Æfingar falla niður

Æfingar falla niður um helgina vegna landsleiks Íslands í handbolta. Leikir liðsins verða sýndir á risatjaldi í aðalsalnum í Vodafone höllinni og eru allir hvattir til þess að mæta.

Saturday, January 23, 2010

Póstmót Breiðabliks

Var bara að frétta það núna að ég á að sjá um að rukka inn keppnisgjald sem er 1500 kr á mann, þannig að ef einhverjir sjá þessa færslu hjálpar það til ef þið verðið reddí með pening þegar þið mætið á staðin.

kv Frosti

Thursday, January 21, 2010

Póstmót Breiðabliks niðurröðun

Jæja þá er kominn niðurröðun fyrir Póstmótið.

10 ára spila í Kársnessskóla og eiga leiki kl. 8:30, 9:30 og 10:30 þannig að þeir verða bara mættir kl 8:00.

11 ára spila síðan í Smáranum kl 16:00, 16:30 og 18:00 þannig að þeir verða mættir kl 15:30.

Endilega látið vita ef einhverjir komast ekki, það eru fáir drengir á hvoru ári þannig við meigum ekki við að missa marga.

Vonandi sé ég sem flesta.

Kv. Frosti

Monday, January 18, 2010

Póstmót Breiðabliks

Jæja þá eru hlutirnir aðeins að skýrast með póstmótið um helgina. Það er ekki enn komin niðurröðun á leiki en mér sýnist að okkar drengir eigi að spila alla sína leiki á sunnudeginum. 10 ára drengir eiga að spila í Kársnesskóla en 11 ára drengir í Smáranum, þetta er gert vegna þess að svo mörg lið hafa skráð sig að ekki er pláss fyrir alla í Smáranum. Ég mun segja frá niðurröðun um leið og ég fæ upplýsingar um hana.

Kv Frosti

Sunday, January 17, 2010

Vinavika

Nú er vinavikan búinn en þeir vinir sem hafa áhuga meiga æfa frítt í 2 vikur á meðan þeir ákveða hvort þeir vilja halda áfram. Upplýsingar um skráningar í flokkinn eru á heimasíðunni valur.is

kv Frosti

Wednesday, January 13, 2010

Gleðilegt ár

Sæl verið þið. Vildi nota tækifærið og kynna mig fyrir foreldrum og prófa mig áfram hérna á blogginu, og láta vita að hér verða allar upplýsingar kynntar framvegis. En ég heiti Frosti Sigurðarson og er nýráðinn þjálfari drengjanna. Annars vonast ég bara til að sjá sem flesta foreldra á fundinum kl. 6 á morgun.

Kv. Frosti

Tuesday, January 12, 2010

Foreldrafundur

Fimmtudaginn 14. janúar verður haldinn foreldrafundur minniboltans og hefst hann kl. 18:00. Fundurinn verður haldinn í Lollastúku í Valsheimilinu og þar gefst foreldrum möguleiki á að hitta nýjan þjálfara flokksins. Á fundinum verður farið yfir helstu málefni flokksins eins og samskipti, mótafyrirkomulag, keppnir og æfingar, mikilvægi þátttöku foreldra í starfinu, foreldrafélag, fjáraflanir og annað slíkt. Einnig fá foreldrar upplýsingabækling sem er sérstaklega hannaður fyrir flokkinn. Mikilvægt er að allir iðkendur hafi sinn fulltrúa á fundinum vegna þess að mörg mót eru framundan og það verður mikið um að vera hjá flokknum nú á vorönn hjá körfuboltanum.

Bestu kveðjur,

Lýður og Frosti

Monday, January 11, 2010

Vinavika Vals

Nú er í gangi vinavika Vals og hvetjum við alla til þess að taka með sér 1-2 vini á æfingar. Með á æfingunum verður Byron Davis leikmaður meistaraflokks Vals og mun hann aðstoða við æfingar og eflaust kenna einhverjar nýjar æfingar. Svo er aldrei að vita nema hann verði með troðslusýningu í lokin.

Við viljum minna á að öllum vinum er frjálst að prófa að mæta áfram á æfingar næstu tvær vikurnar

Tuesday, January 5, 2010

Rafræn Reykjavík

Búið er að skrá alla iðkendur inn í rafræna Reykjavík. Opið er fyrir ráðstöfun frístundastyrksins út janúar mánuð en eftir það verða sendir út gíróseðlar. Ef barnið er ekki skráð þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins í síma 414-8000 eða sendið tölvupóst á ragnhildur@valur.is

Sunday, January 3, 2010

Æfingar hefjast að nýju

Gleðilegt ár.

Æfingar fara á fullt á nýjan leik núna á þriðjudaginn næstkomandi (5. janúar) samkvæmt æfingatöflu. Sjáumst hressir.